Hack the iPhone





Hvernig skal virkja og aflæsa iPhone með 1.1.3 kerfinu með því að nota iNdependence (3.9 / 4.6 bootloader)

(PPC og intel Mac)




Þú getur notað iPhone með hvaða kerfi sem er og hvaða "Bootloader", þú verður bara að uppfæra í 1.1.3 með iTunes fyrst. Í mínu tilfelli notaði ég tvo mismunandi síma fyrir þessar leiðbeiningar. Einn með 3.9 bootloader (uppfærðan) og annan glænýjan 1.1.3 með 4.6 bootloader. Þessi aðferð gerir símann með 1.1.3 kerfi og 04.02.13_G basebandi. Ath: Ég hef heyrt að IPSF aflæsing haldist í gegnum allt ferlið. Það eru aðrar leiðbeiningar neðst sem ég er búnað merkja. Það hjálpar við að setja upp "Installer" og laga EDGE vandamál.



ATH!

Þú ættir að lesa viðvörun til allra iPhone eigenda áður en þú heldur áfram.





Ef þú villt sjá mjög leiðinlegt myndband af þessu ferði (sem tók mig varla 5 mínutur), þá geturu séð það hérna fyrir neðan.





Skref 1.

Sæktu iNdependence hér. Ef þú lendir í einhverjum vandræðum með þetta ferli skaltu lesa: hjálparsíðuna hjá iNdependence til að finna lausn Ég hef ekki lent í neinu veseni með sex síma sem ég hef farið með í gegnum þetta ferli, að því leiti get ég ekki hjálpað þér.

Vertu viss um að iTunes sé lokað! Þú skallt einnig opna Activity Monitor og vera viss um að iTunes Helper sé ekki í gangi. Til þess að gera þetta þarftu að fara í forrita möppuna á tölvunni og svo í "Utilities" möppuna, þar finnuru forrit sem heitir "Activity Monitor". Kveiktu á því. Efst er fellilisti. Vertu viss að þú sért með "My Processes" valið. Finndu nú "iTunes Helper". Veldu það og ýttu á rauða "Quit Process" stop hnappinn.

iPhone



Efst kemur upp gluggi, veldu "Force Quit". Þú getur nú lokað "Activity Monitor". "iTunes Helper" byrjar ekki aftur fyrr en þú hefur endurræst tölvuna.

iPhone



Tengdu símann og kveiktu á iNdependence. Ef þessu gluggi kemur upp lokaðu forritinu og opnaðu það aftur.

iPhone



Þú ættir að sjá þessa valmynd.

iPhone



Ýttu á "Activate Phone" hnappinn. Myndin á símanum ætti að breytast úr þessari vinstra megin í þessa hægra megin.

iPhone       iPhone








Skilaboðin "Waiting for jail break..." mun birtast.

iPhone



Alls konar kóði mun fylla skjáinn og byrja að rúlla niður hratt í mínutu eða svo.

iPhone



Síminn mun nú endurræsa sér og nú ættiru að finna þig á "renndu til að aflæsa" skjánum

iPhone



Þú færð upp þessa valmynd um að þetta hafi tekist.

iPhone



Nú ertu aftur kominn á gluggan sem þú byrjaðir á í iNdependence. Lokaðu iNdependence

iPhone








Skref 2.

Veldu "Settings", "General", "Auto-Lock" og veldu "Never". Farðu til baka í "Settings" og settu símann í "Airplane Mode"

iPhone       iPhone




Skref 3.

Kveiktu aftur á iNdependence. Til að aflæsa símanum fyrir hvað SIM kort sem er veldu "SIM Unlock Phone" hnappinn.

iPhone



Þessi gluggi mun kokma upp, veldu það sem við á.

iPhone



Þú sérð næst "Waiting for SIM unlock..." skilaboð.

ATH: Ef síminn er fastur á aðalvalmyndinni og endurræsir sér ekki eftir 30 sekúndur, þá þarftu að loka iNdependence (líklegast "Force Quit" með því að hægri smella á smámyndina í kvíinni og halda inni "Alt" og velja "Force Quit") og gera það sama aftur.

iPhone



Síminn ætti að endurræsa sér og sína iTunes merki + snúru. Síðan fyllist skjárinn af kóða sem mun rúlla niður í mínutu eða tvær.

iPhone       iPhone



Síminn endurræsir sig og klárar. Skilaboð um að þetta hafi heppnast munu birtast. Renndu til að aflæsa og njóttu.

iPhone



Þú ættir að halda áfram á þessa síðu til að setja upp SSH, "Installer" og laga marga kvilla sem fólk hefur verið með á EDGE.



ATH: Stundum segir iNdependence að ferlið hafi tekist en það er það ekki! Á meðan ég var að aflæsa einum síma fékk ég "Repair Needed" skilaboðin og missti þráðlaust samband í "Settings" glugganum. Síminn var langt frá aflæstur. Ekkert mál, keyrðu bara aftur "SIM unlock" ferlið. Ég get staðfest tvö tilvik þar sem þetta gerðist og þetta lagaðist eftir að hafa verið keyrt í annað sinn.


Þú tekur eftir því að þegar þú ert búnað tengja símann við iTunes eru 200MB flokkið sem "Other" í símanum. Ég held að þetta sé 1.1.3 kerfið. Ef ég kemst að öðru mun ég reyna að fá aftur þessi 200MB.

iPhone








Fara efst á síðu.